Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok desember 1997 og til samanburðar í lok desember 1996 ásamt breytingum í mánuðinum og frá ársbyrjun til ársloka. Þar sem árslokauppgjöri og endurskoðun er ekki lokið eru tölur fyrir desemberlok 1997 bráðabirgðatölur og kunna þær að taka breytingum í endanlegu uppgjöri.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans rýrnaði um rúma 0,9 milljarða króna í desember og nam í lok mánaðarins 28 milljörðum króna. Erlendar skammtímaskuldir bankans eru óverulegar og breyttust lítið í mánuðinum.
Á gjaldeyrismarkaði nam nettó gjaldeyrissala Seðlabankans í desember
tæpum 0,1 milljarði króna. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu
gengisskráningar, hækkaði í desember um 0,1%. Frá ársbyrjun 1997 til ársloka
hækkaði gengi krónunnar 1,4%.
Heildareign Seðlabankans í
markaðsskráðum verðbréfum lækkaði í desember um rúma 0,2 milljarða króna og er
þá miðað við markaðsverð. Eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs jókst um
tæpan 0,1 milljarð króna og ríkisbréfaeignin jókst um rúman 0,1 milljarð króna.
Ríkisvíxlaeignin lækkaði um 0,4 milljarða króna og nam í mánaðarlok 2,8
milljörðum króna. Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 3,8 milljarða
króna í desember en nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um
rúma 0,5 milljarða króna og námu 6,4 milljörðum króna í árslok 1997. Grunnfé
bankans hækkaði um 3,3 milljarða króna í mánuðinum og nam 19,7 milljörðum króna
í lok ársins. Vöxtur þess yfir árið var3,3%.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Nr. 1/1998
12. janúar 1998