Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok febrúar 1998 og til samanburðar í lok desember 1997 ásamt breytingum í mánuðinum og frá áramótum.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans rýrnaði um rúma 1,4 milljarða króna í febrúar og nam í lok mánaðarins 26,3 milljörðum króna (jafnvirði 367 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlendar skammtímaskuldir bankans eru óverulegar og breyttust lítið í mánuðinum.
Á gjaldeyrismarkaði námu nettó gjaldeyriskaup Seðlabankans í febrúar
tæpum 5,4 milljörðum króna. Rýrnun gjaldeyrisforðans í febrúar stafaði af sölu
Seðlabankans á gjaldeyri vegna vaxta- og endurgreiðslna á erlendum lánum
ríkissjóðs umfram kaup bankans á gjaldeyri á markaði. Gengi íslensku krónunnar,
mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði í febrúar um
1,2%.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum
rýrnaði í febrúar um rúma 1,7 milljarða króna og er þá miðað við markaðsverð.
Eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs jókst um rúma 0,5 milljarða króna en
ríkisbréfaeignin lækkaði um 0,1 milljarð króna. Ríkisvíxlaeignin lækkaði um 2,2
milljarða króna og nam í mánaðarlok 5 milljörðum króna. Kröfur Seðlabankans á
innlánsstofnanir lækkuðu um 0,3 milljarða króna í febrúar en nettókröfur bankans
á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 0,1 milljarð króna og námu 7,3
milljörðum króna í lok febrúar. Grunnfé bankans lækkaði um 2,1 milljarð króna í
mánuðinum og nam 16,9 milljörðum króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Nr. 7/1998
5. mars 1998