Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok apríl 1998 og til samanburðar í lok desember 1997 ásamt breytingum í mánuðinum.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um tæpan 1,1 milljarð króna í apríl og nam í lok mánaðarins 28,4 milljörðum króna (jafnvirði 396 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlendar skammtímaskuldir bankans eru óverulegar og breyttust lítið í mánuðinum.
Á gjaldeyrismarkaði námu nettó gjaldeyriskaup Seðlabankans í apríl
tæpum 3,7 milljörðum króna. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu
gengisskráningar, hækkaði í apríl um 0,2%.
Heildareign
Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum jókst í apríl um rúma 0,5 milljarða
króna og er þá miðað við markaðsverð. Eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs
lækkaði um 0,3 milljarða króna en ríkisbréfaeignin hækkaði lítillega.
Ríkisvíxlaeignin jókst um 0,9 milljarða króna og nam í mánaðarlok rúmum 1,8
milljörðum króna. Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 0,7
milljarða króna í apríl en nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir
lækkuðu um 0,5 milljarða króna og námu 3,6 milljörðum króna í lok apríl. Grunnfé
bankans hækkaði um milljarð króna í mánuðinum og nam 19,1 milljarði króna í lok
hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Nr. 21/1998
6. maí 1998