Greiðslujöfnuður við útlönd janúar-mars 1998
Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands var 16,1 milljarðs króna viðskiptahalli við útlönd á fyrsta fjórðungi ársins samanborið nær hallalaus viðskipti á sama tíma í fyrra. Á fyrsta ársfjórðungi mældist fjárinnstreymi um 15 milljarðar króna vegna fjárfestingar erlendra aðila í stóriðju og lántöku innlánsstofnana og fyrirtækja í útlöndum. Fjárútstreymi vegna erlendra verðbréfakaupa nam 3,3 milljörðum króna og ríkissjóður endurgreiddi erlend lán fyrir 4,3 milljarða króna. Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði á fyrsta ársfjórðungi um 0,7 milljarða króna og nam 27,2 milljörðum króna í lok mars 1998.
Mikill halli á utanríkisviðskiptum Íslendinga á fyrsta ársfjórðungi 1998 stafar aðallega af 11,2 milljarða króna óhagstæðum vöruviðskiptum skv. upplýsingum Hagstofu Íslands. Mikil og óhagstæð umskipti vöruskiptajafnaðar frá því í fyrra skýrast að hluta af sérstökum þáttum, svo sem kaupum og sölu á flugvélum og fjárfestingu í stóriðju, og að hluta af minni fiskafla og aukinni innlendri eftirspurn. Halli á þjónustujöfnuði jókst einnig nokkuð á milli ára og nam 1,6 milljörðum króna. Þáttatekjur nettó, þ.e. laun, vextir og arður af fjárfestingu, voru neikvæðar um 3,2 milljarða á fyrsta fjórðungi ársins samanborið við 4 milljarða króna halla í fyrra.
Taflan sýnir samandregið yfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd. Ítarlegar upplýsingar um greiðslujöfnuðinn verða birtar í júníhefti Hagtalna mánaðarins.
Greiðslujöfnuður við útlönd í milljörðum króna
Nr. 29/1998
8. júní 1998