Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok september 1998 og til samanburðar í lok desember 1997 ásamt breytingum í mánuðinum og frá áramótum.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans lækkaði um hálfan milljarð króna í september og nam í lok mánaðarins 28,7 milljörðum króna eða jafnvirði 414 milljóna bandaríkjadala. Erlendar skammtímaskuldir bankans jukust í mánuðinum um 2 milljarða króna og voru í mánaðarlok um 3,3 milljarðar króna.
Á gjaldeyrismarkaði voru hrein gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans neikvæð um 1,7 milljarða króna í september. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 0,5%.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum minnkaði í september um 3,1 milljarða króna, miðað við markaðsverð, mest vegna sölu á spariskírteinum til ríkissjóðs. Í lok mánaðarins nam spariskírteinaeign bankans um 5 milljörðum króna en hún var um 8 milljarðar í upphafi mánaðarins. Ríkisbréf og ríkisvíxlar í eigu bankans breyttust hins vegar óverulega.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir breyttust nær ekkert í september en innstæður þeirra í bankanum lækkuðu um 2,4 milljarða króna. Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 0,7 milljarða króna og námu um 3,9 milljörðum króna í lok september. Grunnfé bankans lækkaði um 2,8 milljarða króna í mánuðinum og nam 20,7 milljörðum króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Nr. 55/1998
5. október 1998