Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi
Seðlabanka Íslands í lok janúar 1999 og til samanburðar í lok desember 1998
ásamt breytingum í mánuðinum.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans rýrnaði um
1,1 milljarð króna í janúar og nam í lok mánaðarins 28,6 milljörðum króna
(jafnvirði 411 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).
Erlendar
skammtímaskuldir bankans námu 2,5 milljörðum í lok janúar og höfðu lækkað um 1,4
milljarða króna í mánuðinum. Langtímaskuldir lækkuðu um 1,9 milljarða króna og
námu 3,2 milljörðum króna í mánaðarlok.
Á gjaldeyrismarkaði námu
bókfærð gjaldeyriskaup Seðlabankans í janúar 3,3 milljörðum króna. Gengi
íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði í mánuðinum um
0,4%.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum jókst um 1,1
milljarð króna í janúar og er þá miðað við markaðsverð. Mestu munar að
ríkisvíxlaeignin jókst um tæplega 1 milljarð króna.
Kröfur Seðlabankans á
innlánsstofnanir lækkuðu um 1,6 milljarða króna í janúar og námu 18 milljörðum í
lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir minnkuðu um 1,7 milljarða króna
í mánuðinum og námu 6 milljörðum króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á
ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 3,2 milljarða króna og voru neikvæðar um
5 milljarða króna í lok janúar, sem þýðir að innstæður ríkissjóðs og
ríkisstofnana í bankanum námu hærri fjárhæð en kröfur hans á móti.
Grunnfé bankans hækkaði um 0,4 milljarða króna í mánuðinum og nam 21
milljarði króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar
Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Nr. 9 /1999
5. febrúar 1999