Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
febrúar 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt breytingum í mánuðinum
og frá áramótum.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 0,6 milljarða
króna í febrúar og nam í lok mánaðarins 29,3 milljörðum króna (jafnvirði 407
milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlendar skammtímaskuldir bankans
námu tæpum 4 milljörðum króna í lok febrúar og höfðu hækkað um 1,4 milljarða
króna í mánuðinum.
Á millibankamarkaði með gjaldeyri voru bókfærð
gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans í febrúar jákvæð um 1,5 milljarða króna. Gengi
íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um
0,6%.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum jókst
lítillega í mánuðinum og nam 9,1 milljarði króna í febrúarlok miðað við
markaðsverð.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 5,5 milljarða
króna í febrúar og námu 12,5 milljörðum í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar
fjármálastofnanir jukust um tæpan 1 milljarð króna í mánuðinum og námu 7
milljörðum króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir hækkuðu um 3,8 milljarða króna og voru neikvæðar um 1,2 milljarða
króna í lok febrúar, sem þýðir að innstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana í
bankanum námu hærri fjárhæð en kröfur hans á móti.
Grunnfé bankans
minnkaði um 1,8 milljarða króna í mánuðinum og nam 19,1 milljarði króna í lok
hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla
Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Nr. 15/1999
4. mars 1999