Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
mars 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt breytingum í mánuðinum.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 3,4 milljarða króna í mars og
nam í lok mánaðarins 32,6 milljörðum króna (jafnvirði 450 milljóna
bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).
Erlendar skammtímaskuldir
bankans námu 0,1 milljarði króna í lok mars og höfðu lækkað um 3,8 milljarða
króna í mánuðinum.
Á millibankamarkaði með gjaldeyri voru bókfærð
gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans í mars jákvæð um 7,2 milljarða króna. Gengi
íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði í mánuðinum um
0,2%.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 9,6
milljörðum króna í marslok miðað við markaðsverð og jókst um 0,5 milljarða króna
í mánuðinum.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir breyttust afar lítið og
námu þær 12,5 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar
fjármálastofnanir drógust saman um 2,2 milljarða króna og námu 4,8 milljörðum
króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir
hækkuðu um 3,2 milljarða króna og voru jákvæðar um 2 milljarða króna í lok
mars.
Grunnfé bankans jókst um 9,9 milljarða króna í mánuðinum og nam
29 milljörðum króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar
Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Nr. 22/1999
8. apríl 1999