Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi
Seðlabanka Íslands í lok apríl 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt
breytingum í mánuðinum og frá ársbyrjun.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans
jókst um 1,6 milljarða króna í apríl og nam í lok mánaðarins 34,2 milljörðum
króna (jafnvirði 467 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).
Erlendar skammtímaskuldir eru nær engar. Erlendar langtímaskuldir breyttust
óverulega í apríl og námu í mánaðarlok 3,4 milljörðum króna. Þær höfðu lækkað um
1,7 milljarða króna frá áramótum.
Á millibankamarkaði með gjaldeyri
keypti Seðlabankinn 1,7 milljarða króna af gjaldeyri í apríl umfram það sem hann
seldi. Gengi íslensku krónunnar mælt með vísitölu gengisskráningar lækkaði um
0,4% í mánuðinum.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum
nam 11,2 milljörðum króna í apríllok miðað við markaðsverð og jókst um 1,5
milljarða króna í mánuðinum. Breytingin fólst nær öll í aukinni ríkisvíxlaeign
bankans sem nam 4,9 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Kröfur Seðlabankans á
innlánsstofnanir lækkuðu um 0,4 milljarða króna í apríl og námu 12,1 milljarði
króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 0,9
milljarða króna og voru 5,7 milljarðar króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur
bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 8 milljarða króna í apríl og
voru neikvæðar um 6 milljarða króna í lok hans. Hreyfing á reikningum ríkissjóðs
í mánuðinum var óvenjuleg vegna útborgunar launa 30. mars í stað 1. apríl.
Grunnfé bankans lækkaði um 7,2 milljarða króna í mánuðinum og nam 21,8
milljörðum króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar
Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Nr. 28/1999
6. maí 1999