Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi
Seðlabanka Íslands í lok júní 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt
breytingum í mánuðinum.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um
0,7 milljarða króna í júní og nam í lok mánaðarins 31,1 milljörðum króna
(jafnvirði 418 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).
Á
millibankamarkaði með gjaldeyri seldi Seðlabankinn 0,4 milljarða króna í júní
umfram það sem hann keypti. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu
gengisskráningar, hækkaði um 0,7% í mánuðinum.
Heildareign Seðlabankans
í markaðsskráðum verðbréfum nam 8,6 milljörðum króna í júnílok miðað við
markaðsverð og lækkaði um 0,7 milljarða í mánuðinum. Breytingin fólst nær
öll í sölu ríkisvíxla bankans, en í lok mánaðarins nam eignin 2,3 milljörðum.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 3,9 milljarða í júní og
námu þær 15,5 milljörðum í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir
lækkuðu aftur á móti um tæpan 1 milljarð og voru 4,5 milljarðar króna í
lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 3,5
milljarða króna í mánuðinum og voru neikvæðar um 5,3 milljarða króna í lok
júní.
Grunnfé bankans jókst um 0,9 milljarða króna í mánuðinum og nam
það 22 milljörðum króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita
bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma
569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Nr. 42/1999
5. júlí 1999