Seðlabanki Íslands hækkar vexti
Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans í viðskiptum hans við lánastofnanir um 0,8 prósentustig með gildistöku 12. janúar 2000. Ávöxtun í tilboðum bankans á Verðbréfaþingi Íslands hækkar einnig samsvarandi. Ávöxtun í endurhverfum viðskiptum bankans hækkar um 0,8 prósentustig á næsta uppboði og vextir á viðskiptareikningum og á bindireikningum lánastofnana 21. janúar nk.
Frá því að Seðlabankinn hækkaði vexti í september sl. hefur dregið úr því aðhaldi sem fólgið er í stýrivöxtum bankans. Meginástæða þess er að verðbólga og verðbólguvæntingar hafa vaxið. Þá hafa vextir hækkað í mikilvægum viðskiptalöndum undanfarna mánuði auk þess sem nýjar reglur bankans um laust fé lánastofnana hafa leitt til nokkurrar lækkunar á vöxtum á millibankamarkaði það sem af er þessu ári.
Gengi krónunnar hækkaði eftir vaxtahækkun bankans í september, hikaði um stund í nóvember en hækkaði síðan áfram í desember. Það sem af er janúar hefur það hins vegar lækkað nokkuð. Seðlabankinn telur að í desember hafi gætt tímabundinna áhrifa til styrkingar gengis krónunnar m.a. vegna lítilla kaupa á erlendum verðbréfum og viðbúnaðar fjármálastofnana vegna áramótanna. Í riti sínu Peningamálum sem út kom í nóvember sl. lýsti Seðlabankinn því yfir að hann teldi nauðsynlegt að skammtímavextir yrðu nógu háir til þess að stuðla að hækkun á gengi krónunnar frá því sem það var þegar bankinn gaf út verðbólguspá sína 25. október sl. Ástæðan var sú að verðbólguspáin fól í sér meiri verðbólgu á því ári sem nú er hafið en hægt er að una við, þ.e. 4,1% á milli áranna 1999 og 2000. Í dag er gengi krónunnar nokkurn veginn hið sama og það var 25. október.
Vaxtahækkun Seðlabankans nú staðfestir þann ásetning bankans að fylgja áfram peningastefnu sem stuðlar að hærra gengi krónunnar og þar að með minni verðbólgu en ella.
Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísl. Gunnarsson formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands í síma 569-9600
Nr. 2/2000
11. janúar 2000