Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi
Seðlabanka Íslands í lok mars 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt
breytingum í mars og frá ársbyrjun.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans
jókst lítillega í mars og nam 32,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði
441 milljónar bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar,
mælt með vísitölu gengisskráningar, stóð nokkurn veginn í stað í
mánuðinum.
Erlend skammtímalán bankans námu 8,4 milljörðum króna í mánaðarlok
og höfðu lækkað um 1,2 milljarða í mánuðinum.
Heildareign Seðlabankans
í markaðsskráðum verðbréfum nam 8,2 milljörðum króna í marslok miðað við
markaðsverð og breyttist ekki í mánuðinum. Þar af voru markaðsskráð verðbréf
ríkissjóðs 5,1 milljarður króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir
lækkuðu um 1,2 milljarða króna í mars og námu 29,3 milljörðum króna í lok
mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu aftur á móti um 0,6
milljarða króna í mánuðinum og voru 6,1 milljarður króna í lok
hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 1,5
milljarða króna í mars og voru neikvæðar um 7,3 milljarða króna í lok
mánaðarins. Þar með höfðu nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir
hækkað um 4,2 milljarða króna frá áramótum.
Grunnfé bankans jókst um 1,7
milljarða króna í mánuðinum og nam 26,9 milljörðum króna í lok
hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla
Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Nr. 11/2000
6. apríl 2000