Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
maí 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í maí og frá
ársbyrjun.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóð því sem næst í stað
í maí og nam 32,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 428 milljóna
bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með
vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 0,8%.
Erlend skammtímalán
bankans hækkuðu um 1,1 milljarð króna í mánuðinum og námu þau 9,5 milljörðum
króna í maílok.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum
nam 10 milljörðum króna í maílok miðað við markaðsverð og hækkaði um 1,3
milljarða króna í mánuðinum. Þar af eru markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs
7,2 milljarðar króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 4,2
milljarða króna í maí og námu þær 26,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur
á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu einnig um 2,6 milljarða króna í mánuðinum og
voru 5,3 milljarðar króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir hækkuðu um 7 milljarða króna í maí og voru þær neikvæðar um 2,8
milljarða króna í lok mánaðarins. Þar með hafa nettókröfur á ríkissjóð og
ríkisstofnanir hækkað um 8,7 milljarða króna frá áramótum.
Grunnfé bankans
hækkaði um 1,8 milljarða króna í mánuðinum og nam 28,8 milljörðum króna í lok
hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla
Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í milljónum króna
Nr. 13/2000
7. júní 2000