Greiðslujöfnuður við útlönd janúar-mars 2000
Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands nam viðskiptahallinn við útlönd 13,1 milljarði króna á fyrsta fjórðungi ársins samanborið við 8 milljarða króna halla á sama tíma í fyrra. Fjárinnstreymi mældist vera 10,4 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi sem skýrist af erlendum lántökum. Fjárútstreymi vegna erlendra verðbréfakaupa nam 19,2 milljörðum króna og lánastofnanir juku aðrar erlendar eignir sínar á fyrsta fjórðungi ársins. Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði um 3,2 milljarða króna og nam 32,4 milljörðum króna í lok fyrsta ársfjórðungs 2000.
Aukinn halli á utanríkisviðskiptum Íslendinga á fyrsta fjórðungi ársins stafar aðallega af meiri halla á vöruviðskiptum en í fyrra skv. upplýsingum Hagstofu Íslands. Umtalsverð aukning varð í innflutningi, einkum á eldsneyti sem hefur hækkað mikið í verði frá fyrra ári. Þrátt fyrir samdrátt í útflutningi sjávarafurða og í sölu skipa og flugvéla úr landi, jókst vöruútflutningur í heild um nær 2% vegna meiri útflutnings á iðnaðarvörum og þá aðallega á áli og kísiljárni. Halli á þjónustujöfnuði jókst nokkuð á milli ára og nam um 2,5 milljörðum króna. Þáttatekjur nettó, þ.e. laun, vextir og arður af fjárfestingu, voru neikvæðar um 4,6 milljarða króna á fyrsta fjórðungi ársins samanborið við 5,2 milljarða króna halla í fyrra.
Tafla yfir greiðslujöfnuð við útlönd í milljörðum króna
Viðskiptahallinn á fyrsta fjórðungi ársins er í samræmi við spá Þjóðhagsstofnunar frá því í mars um 50 milljarða króna halla á árinu í heild.. Erlendar skuldir þjóðarinnar voru um 310 milljarðar króna umfram eignir í lok mars sl. Erlend skuldastaða þjóðarinnar hefur versnað á síðustu árum vegna viðskiptahallans en á móti vegur gengishækkun krónunnar og umtalsverð hækkun á markaðsvirði erlendrar verðbréfaeignar Íslendinga á síðustu árum. Á meðfylgjandi yfirlitum eru ítarlegri upplýsingar um greiðslujöfnuðinn við útlönd og erlenda stöðu þjóðarbúsins.
Nánari upplýsingar veitir Jakob Gunnarsson deildarstjóri á tölfræðisviði Seðla-bankans í síma 569-9600.
Greiðslujöfnuður við útlönd-tafla
Erlend staða þjóðarbúsins-tafla
Nr. 14/2000
9. júní 2000