Endurskoðun á gengisskráningarvog
Seðlabanki Íslands hefur endurskoðað gengisskráningarvog krónunnar í ljósi
utanríkisviðskipta ársins 1999. Slík endurskoðun fór síðast fram í júní 1999.
Meðfylgjandi tafla sýnir nýju vogina og breytingar frá fyrri vog. Nýja vogin mun
mæla gengisbreytingar frá gengisskráningu á morgun 20. júlí 2000 og þar til
næsta endurskoðun fer fram um svipað leyti á næsta ári.
Gengisskráningarvogin
er endurskoðuð árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður.
Markmiðið er að hún endurspegli ætíð eins vel og kostur er samsetningu
utanríkisviðskipta þjóðarinnar, bæði vöru- og þjónustuviðskipta. Frá og með
endurskoðuninni 1998 kom evran inn í gengisskráningarvog krónunnar í stað
gjaldmiðla þeirra Evrópulanda sem urðu þátttakendur í Efnahags- og myntbandalagi
Evrópu í upphafi síðasta árs. Áhersla er lögð á að hér er aðeins um að ræða
tæknilega breytingu á þeirri gengisvog sem notuð er við daglegan útreikning á
gengi krónunnar. Breytingin felur ekki í sér neina breytingu á gengisstefnu
Seðlabankans.
Stærsta breytingin frá fyrri vog er að vægi evru
minnkar um nær 3%. Á hinn bóginn eykst vægi breska pundsins um 1,4%,
Bandaríkjadals um 0,6% og Norðurlandagjaldmiðla, þ.e.a.s. sænskrar, danskrar og
norskrar krónu, samanlagt um 1,1%.
Nánari upplýsingar veitir Már
Guðmundsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, í síma 569 9600.
Nr. 18 /2000
19. júlí 2000