Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í júlí
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
júlí 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í júlí og frá
ársbyrjun.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans hækkaði um 1,5 milljarða króna
í júlí og nam 34,7 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 443 milljóna
bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).
Á millibankamarkaði með gjaldeyri nam
veltan alls 94,9 milljörðum króna í júlí. Seðlabankinn seldi gjaldeyri
fyrir 7 milljarða króna í mánuðinum. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu
gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 0,4%.
Erlend skammtímalán bankans
hækkuðu um 4,9 milljarða króna í júlí og námu þau 17,2 milljörðum í lok
mánaðarins.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 9,7 milljörðum króna í
júlílok miðað við markaðsverð og hækkuðu um 1,2 milljarða króna í
mánuðinum. Þar af eru verðbréf ríkissjóðs 6,9 milljarðar króna.
Kröfur
Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 0,9 milljarða króna í júlí og námu
30,7 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu
um 2,7 milljarða króna í mánuðinum og voru 8,1 milljarður króna í lok
hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 1,4
milljarða króna í júlí og voru neikvæðar um 3,2 milljarða króna í lok
mánaðarins. Þar með hafa nettókröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkað
um 8,4 milljarða frá áramótum.
Grunnfé bankans lækkaði um 0,4 milljarða króna
í mánuðinum og nam 29,1 milljarði króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita
bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma
569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi
Nr. 19/2000
4. ágúst 2000