Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í ágúst
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í
lok ágúst 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í ágúst
og frá ársbyrjun.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans hækkaði um 0,4
milljarða króna í ágúst og nam 35,1 milljarði króna í lok mánaðarins (jafnvirði
436 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).
Á millibankamarkaði með
gjaldeyri, þar sem Seðlabankinn keypti gjaldeyri fyrir 1 milljarð króna, nam
veltan alls 50,1 milljarði króna í ágúst. Gengi íslensku krónunnar, mælt með
vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 0,8%.
Erlend skammtímalán
bankans lækkuðu um 5,5 milljarða króna í mánuðinum og námu þau 11,7 milljörðum
króna í ágústlok. Síðasta afborgun var greidd af eina langtímaláni
Seðlabankans og er það nú uppgreitt.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans
námu 7,7 milljörðum króna í ágústlok miðað við markaðsverð og lækkuðu um 2
milljarða króna í mánuðinum. Þar af eru markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs
4,8 milljarðar króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu í ágúst
og námu 27,8 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar
fjármálastofnanir lækkuðu einnig um 0,3 milljarða króna í mánuðinum og voru 7,8
milljarðar króna í lok hans.
Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana í
Seðlabankanum hækkuðu um 5,9 milljarða króna í ágúst og námu 9,1 milljarði króna
í lok mánaðarins. Þar með hafa nettóinnstæður ríkis í bankanum lækkað um 2,4
milljarða króna frá áramótum.
Grunnfé bankans lækkaði um 3 milljarða króna í
mánuðinum og nam 26,1 milljarði króna í lok hans.
Nánari upplýsingar
veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma
569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Nr. 20/2000
6. september 2000