Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
október 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í október
og frá ársbyrjun.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóð því sem næst
í stað í október og nam 35,1 milljarði króna í lok mánaðarins (jafnvirði 404
milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar,
mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 2,3%.
Erlend
skammtímalán bankans lækkuðu um 3,8 milljarða króna í mánuðinum og námu þau 10,9
milljörðum króna í októberlok.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 6,6
milljörðum króna í október lok miðað við markaðsverð, lækkuðu um 0,2 milljarða
króna í mánuðinum. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 3,8
milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 2,6
milljarða króna í október og námu 31,2 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust einnig í mánuðinum um 0,7 milljarða
króna og námu 9,9 milljörðum króna í lok hans.
Nettóinnstæður ríkissjóðs og
ríkisstofnana í bankanum hækkuðu um 6,5 milljarða króna í október og námu 11,4
milljörðum króna í lok mánaðarins (nettókröfur bankans voru neikvæðar um þá
fjárhæð).
Grunnfé bankans jókst um 0,3 milljarða króna í mánuðinum og nam
28,2 milljörðum króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar
Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Tafla yfir helstu liðir í efnahagi Seðlabanka Íslands
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum
gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum
ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru
húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á
innláns-stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á
þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem
Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.
Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan
Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana
eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður
innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að
eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls
eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi gjaldeyrisstaða
Seðlabankans, nettó, sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum
erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi kröfur Seðlabankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir, nettó, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum
innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar kröfur á aðra en ríkið
brúttó, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í
umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 26/2000
6. nóvember 2000