Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
desember 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í desember
2000 og frá ársbyrjun 2000.
Þar sem áramótauppgjöri og endurskoðun er
ekki lokið eru tölur fyrir desemberlok 2000 bráðabirgðatölur (og kunna þær að
taka breytingum í endanlegu uppgjöri).
Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst
saman um 0,5 milljarða króna í desember og nam 34,2 milljörðum króna í lok
mánaðarins (jafnvirði 405 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi
íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um
1%. Seðlabankinn seldi gjaldeyri á millibankamarkaði fyrir 0,5 milljarða króna í
mánuðinum.
Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 0,4 milljarða króna í
mánuðinum og námu 15,8 milljörðum króna í desemberlok.
Markaðsskráð verðbréf
í eigu bankans námu 6,5 milljörðum króna í desemberlok miðað við markaðsverð og
höfðu dregist saman um 0,6 milljarða króna í mánuðinum. Markaðsskráð verðbréf
ríkissjóðs í eigu bankans námu 3,7 milljörðum króna í lok desember.
Kröfur
Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 10,4 milljarða króna í desember og
námu 39 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir
jukust um 0,9 milljarða króna í mánuðinum og voru 13,1 milljarður króna í lok
hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir minnkuðu um 3,5
milljarða króna í desember og voru neikvæðar um 12,1 milljarð króna í lok
mánaðarins, þ.e. innstæður ríkissjóðs umfram skuldir námu 12,1 milljarði króna.
Þar með höfðu nettókröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkað um 0,5 milljarða
króna á árinu.
Grunnfé bankans jókst um 6,9 milljarða króna í mánuðinum og
nam 32,3 milljörðum króna í lok hans. Á árinu í heild dróst grunnfé bankans
saman um 3,8 milljarða króna.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar
Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Tafla yfir helstu liði í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum
gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum
ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru
húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á
innláns-stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á
þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem
Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.
Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan
Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana
eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður
innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að
eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls
eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða
Seðlabankans, sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum
skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum
innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en
ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í
umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 2/2001
8. janúar 2001