Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
janúar 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt breytingum í janúar
2001.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 0,8 milljarða króna í
janúar og nam 35 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 410 milljóna
Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með
vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 0,98%. Seðlabankinn seldi
gjaldeyri á millibankamarkaði fyrir 4,1 milljarð króna í janúar.
Erlend
skammtímalán bankans hækkuðu um 5,8 milljarða króna í mánuðinum og námu 21,6
milljörðum króna í lok hans.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 6,4
milljörðum króna í janúarlok miðað við markaðsverð, drógust saman um 0,1
milljarð króna í mánuðinum. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu
3,6 milljörðum króna í lok janúar.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir
lækkuðu um 2 milljarða króna í janúar og námu 37 milljörðum króna í lok
mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust um 4,8 milljarða króna og
voru 17,9 milljarðar króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans á
ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 2,2 milljarða króna í janúar og voru
neikvæðar um 14,3 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður
ríkissjóðs námu 14,3 milljörðum króna.
Grunnfé bankans dróst saman um 4,8
milljarða króna í mánuðinum og nam 27,6 milljörðum króna í lok hans.
Nánari
upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari
í síma 569-9600.
Tafla yfir helstu liði í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í
erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í
spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf
annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur
bankans á innláns-stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur
bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán
sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja
gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð
utan Seðla-banka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana
eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður
innlánsstofnana og annarra fjármála-stofnana eru innstæður sem þeim er skylt að
eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls
eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða
Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum
skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum
innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en
ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í
umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 6/2001
6. febrúar 2001