Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi
Seðlabanka Íslands í lok febrúar 2001 og til samanburðar í lok desember 2000
ásamt breytingum í febrúar 2001 og frá ársbyrjun 2001.
Gjaldeyrisforði
Seðlabankans dróst saman um 0,5 milljarða króna í febrúar og nam 34,6
milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 401 milljónar Bandaríkjadala á
gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu
gengisskráningar, styrktist í mánuðinum um 0,25%. Seðlabankinn seldi gjaldeyri á
millibankamarkaði fyrir rúmlega 1 milljarð króna í febrúar.
Erlend
skammtímalán bankans drógust saman um 0,7 milljarða króna í mánuðinum og námu
20,9 milljörðum króna í lok hans.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu
6,2 milljörðum króna í febrúarlok á markaðsverði, um 0,2 milljörðum króna minna
en í fyrra mánuði. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 3,4
milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 1
milljarð króna í febrúar og námu 37,9 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur
á aðrar fjármálastofnanir jukust um 0,8 milljarða króna og voru 18,7 milljarðar
króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir
hækkuðu um 0,3 milljarða króna í febrúar og voru neikvæðar um 14 milljarða króna
í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana námu 14
milljörðum króna.
Grunnfé bankans jókst um 0,2 milljarða króna í febrúar og
nam 27,9 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar
Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Tafla yfir helstu liði í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum
gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum
ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru
húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á
innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á
þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem
Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.
Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan
Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana
eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður
innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að
eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls
eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettó gjaldeyrisstaða
Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum
skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettó kröfur Seðlabankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir , þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum
innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttó kröfur á aðra en
ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í
umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 11/2001
6. mars 2001