Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í mars 2001
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi
Seðlabanka Íslands í lok mars 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt
breytingum í mars 2001 og frá ársbyrjun 2001.
Gjaldeyrisforði
Seðlabankans jókst um 1,4 milljarða króna í mars og nam 36 milljörðum króna í
lok mánaðarins (jafnvirði 395 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).
Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, veiktist í
mánuðinum um 2,8%. Seðlabankinn seldi gjaldeyri á millibankamarkaði fyrir 6,8
milljarða króna í mars.
Erlend skammtímalán bankans jukust um 7,9 milljarða
króna í mánuðinum og námu 28,8 milljörðum króna í lok hans.
Markaðsskráð
verðbréf í eigu bankans námu 4,8 milljörðum króna í marslok miðað við
markaðsverð, drógust saman um 1,4 milljarða króna í mánuðinum. Markaðsskráð
verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2 milljörðum króna.
Kröfur
Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 3,3 milljarða króna í mars og námu
41,2 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust
einnig í mánuðinum um 1,8 milljarða króna og voru 20,4 milljarðar króna í lok
mánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 0,3
milljarða króna í mars og voru neikvæðar um 13,6 milljarða króna í lok
mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 13,6 milljörðum
króna.
Grunnfé bankans dróst saman um 1,5 milljarða króna í marsmánuði og nam
26,4 milljörðum króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar
Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi í milljónum króna | Staða í lok tímabils | Hreyfingar 2001 | ||
Desember 2000 | Mars 2001 | Frá áramótum | Í mars | |
Eignaliðir | ||||
Gjaldeyrisforði | 34.285 | 36.017 | 1.732 | 1.430 |
Markaðsskráð verðbréf | 6.546 | 4.765 | -.1.782 | -1.405 |
Ríkissjóðs | 3.682 | 1.963 | -1.718 | -1.422 |
Annarra | 2.685 | 2.801 | -64 | 17 |
Kröfur á innlánsstofnanir | 38.978 | 41.202 | 2.224 | 3.254 |
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir | 13.074 | 20.443 | 7.370 | 1.760 |
Skuldaliðir | ||||
Erlendar skuldir til skamms tíma | 15.763 | 28.822 | 13.059 | 7.971 |
Seðlar og mynt | 8.672 | 8.325 | -347 | 387 |
Almennar innstæður innlánsstofnana | 2.495 | 2.691 | 196 | 1.739 |
Staða á bindireikningum innlánsstofnana | 21.249 | 15.375 | -5.874 | -3.606 |
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana | 743 | 42 | -323 | -143 |
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana | 759 | 2.388 | 1.629 | 15 |
Liðir til skýringar | ||||
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó | 18.522 | 7.194 | -11.328 | -6.542 |
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó | -12.119 | -13.638 | -1.518 | 343 |
Kröfur á aðra, brúttó | 52.207 | 61.725 | 9.518 | 5.010 |
Grunnfé | 32.416 | 26.391 | -6.025 | -1.479 |
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum
gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum
ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru
húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á
innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á
þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem
Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.
Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan
Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana
eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður
innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að
eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls
eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða
Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum
skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum
innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttó kröfur á aðra en
ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í
umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 17/2001
5. apríl 2001