Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í júní 2001
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi
Seðlabanka Íslands í lok júní 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt
breytingum í júní 2001 og frá ársbyrjun 2001.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans
dróst saman um 1,2 milljarða króna í júní og nam 35,8 milljörðum króna í lok
mánaðarins (jafnvirði 343 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi
íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, styrktist um 0,6% í
mánuðinum. Gjaldeyrisstaða Seðlabankans nettó nam 6,8 milljörðum króna, dróst
saman um 5 milljarða króna. Seðlabankinn seldi gjaldeyri á millibankamarkaði
fyrir 2,5 milljarða króna.
Erlend skammtímalán bankans jukust um 3,8 milljarða króna í mánuðinum og námu 29 milljörðum króna í júnílok.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5 milljörðum króna í júnílok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,1 milljarði króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu lítillega í júní og námu 42,4 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust aftur á móti í mánuðinum um 1,1 milljarð króna og voru 23,9 milljarðar króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 0,2 milljarða króna í júní og voru neikvæðar um 13,5 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 13,5 milljörðum króna.
Grunnfé bankans dróst saman um 3,9 milljarða króna í júnímánuði og nam 30 milljörðum króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Tafla yfir helstu liði í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum
gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum
ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru
húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á
innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á
þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem
Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.
Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.
Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður
þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður
innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að
eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls
eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða
Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum
skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum
innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en
ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í
umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 28/2001
5. júlí 2001