Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi
Seðlabanka Íslands í lok júlí 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt
breytingum í júlí 2001 og frá ársbyrjun 2001.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans
minnkaði um 1,6 milljarða króna í júlí og nam 34,2 milljörðum króna í lok
mánaðarins (jafnvirði 342 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi
íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði um 2,5% í
mánuðinum.
Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 0,7 milljarða króna í mánuðinum og námu 28,3 milljörðum króna í júlílok.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5 milljörðum króna í júlílok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,1 milljarði króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,8 milljarða króna í júlí og námu 40,5 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu einnig lítillega í mánuðinum og voru 23,7 milljarðar króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 4,8 milljarða króna í júlí og voru neikvæðar um 8,7 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 8,7 milljörðum króna.
Grunnfé bankans hækkaði lítillega í júlímánuði og nam það 30,1 milljarði króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Tafla yfir helstu liði í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum
gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum
ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru
húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á
innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á
þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem
Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.
Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.
Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður
þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður
innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að
eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls
eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða
Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum
skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum
innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en
ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í
umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 29/2001
7. ágúst 2001