Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
ágúst 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt breytingum í ágúst 2001
og frá ársbyrjun 2001.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 2,1 milljarð
króna í ágúst og nam 36,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 370
milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt
með vísitölu gengisskráningar, lækkaði um 0,9% í mánuðinum. Erlend skammtímalán
bankans lækkuðu um 1,4 milljarða króna í mánuðinum og námu 26,9 milljörðum króna
í ágústlok.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,1 milljarði króna í ágústlok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,1 milljarði króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 0,5 milljarða króna í ágúst og námu 41,1 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 0,4 milljarða króna í mánuðinum og voru 24,1 milljarður króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 2,2 milljarða króna í ágúst og voru neikvæðar um 11 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 11 milljörðum króna.
Grunnfé bankans hækkaði í ágústmánuði um 2,6 milljarða króna og nam 32,6 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Tafla yfir helstu liði í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Nr. 31/2001
6. september 2001