Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
október 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt breytingum í október
2001 og frá ársbyrjun 2001.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 2,3
milljarða króna í október og nam 40,2 milljörðum króna í lok mánaðarins
(jafnvirði 389 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku
krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, veiktist um 1,6% í mánuðinum.
Seðlabankinn seldi gjaldeyri á millibankamarkaði fyrir 8,8 milljarða króna í
mánuðinum. Gjaldeyrisstaða Seðlabankans nettó nam 26,7 milljörðum króna,
styrktist um 16,5 milljarða króna í október vegna lánahreyfinga ríkissjóðs, sbr.
frétt bankans nr. 35/2001 frá 28. sept. sl.
Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 14,2 milljarða króna í mánuðinum og námu 13,5 milljörðum króna í októberlok.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,1 milljarði króna í októberlok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,1 milljarði króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 11,5 milljarða króna í október og námu 54,9 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 1,5 milljarða króna í mánuðinum og voru 23,1 milljarður króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 32,8 milljarða króna í október og voru neikvæðar um 43,1 milljarð króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 43,1 milljarði króna.
Grunnfé bankans lækkaði í októbermánuði um 3,4 milljarða króna og nam 29 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Tafla yfir helstu liði efnahagsreiknings Seðlabanka Íslands
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum
gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum
ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru
húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á
innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á
þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem
Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.
Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.
Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður
þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður
innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að
eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls
eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða
Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum
skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum
innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en
ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í
umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 38/2001
6. nóvember 2001