Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum
Fyrsti kafli hér að neðan um dráttarvexti er birtur samkvæmt 2. mgr. 10. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, og gilda dráttarvextir sem þar eru sýndir í sex mánuði í senn frá 1. janúar og 1. júlí ár hvert. Annar kafli um almenna vexti er birtur samkvæmt 2. mgr. 10. gr., sbr. 4. og 8. gr. sömu laga og þriðji kafli samkvæmt bráðabirgðaákvæði III í sömu lögum og gilda vextir samkvæmt II. og III. kafla næsta almanaksmánuðinn eða uns næsta tilkynning birtist.
Vextir sem breytast eru merktir með stjörnu (*). Innan sviga eru sýndir vextir fyrir breytingu.
I. Dráttarvextir af peningakröfum í krónum - Vextir alls á ári, frá og með 1. desember 2001
1. | Grunnur dráttarvaxta1 | 10,9% |
2. | Vanefndaálag2 | 12,6% |
3. | Dráttarvextir5 | 23,5% |
II. Almennir vextir
1. | Vextir óverðtryggðra lána skv. 4.gr. 4 | 14,0%*(14,5%) |
2. | Vextir verðtryggðra lána skv. 4.gr.4 | 7,7%*( 7,8%) |
3. | Vextir af skaðabótakröfum 5 | 9,5% |
III. Dráttarvextir af peningakröfum í erlendri mynt 6
1. | Bandaríkjadollurum | 5,5% |
2. | Sterlingspundum | 7,5% |
3. | Dönskum krónum | 7,0% |
4. | Norskum krónum | 10,5% |
5. | Sænskum krónum | 7% |
6. | Svissneskum frönkum | 5,5% |
7. | Japönskum jenum | 5,0% |
8. | Evrum7 | 6,5%*(7,0%) |
Um leið og tilkynning þessi öðlast gildi 1. desember 2001, fellur úr gildi tilkynning nr. 5/2001 dags. 22. október 2001 um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Reykjavík, 22. nóvember 2001.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
1 Grunnur dráttarvaxta eru gildandi
vextir algengustu skammtímalána Seðlabanka Íslands til lánastofnana, nú ávöxtun
í endurhverfum verðbréfakaupum Seðlabankans.
2 Vanefndaálag er
ellefu hundraðshlutar, nema um annað sé samið skv. 2. mgr. 6. gr. laganna.
Seðlabankanum er þó heimilt að ákveða annað vanefndaálag að lágmarki sjö
hundraðshlutar og að hámarki fimmtán hundraðshlutar.
3 Dráttarvextir eru samtala grunns dráttarvaxta og
vanefndaálags. Seðlabankinn skal birta dráttarvexti eigi skemur en viku fyrir
gildistökudaga dráttarvaxta sem eru 1. janúar og 1. júlí ár
hvert.
4 Almenna vexti skv. 3. gr. laganna skal því aðeins greiða
af peningakröfu að það leiði af samningi, venju eða lögum. Þegar hundraðshluti
þeirra eða vaxtaviðmiðun er að öðru leyti ekki tiltekin, skulu vextir vera á
hverjum tíma jafnháir vöxtum sem Seðlabanki Íslands ákveður með hliðsjón af
lægstu vöxtum á nýjum almennum óverðtryggðum útlánum hjá lánastofnunum og birtir
skv. 10. gr. laganna. Þar sem um verðtryggða kröfu er að ræða skulu vextir vera
jafnháir vöxtum sem Seðlabankinn ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum á nýjum
almennum verðtryggðum útlánum hjá lánastofnunum og birtir skv. 10. gr.
laganna.
Í bráðabirgðaákvæði I. í lögum nr. 38/2001 segir: "Nú segir í
lánssamningi í íslenskum krónum, gerðum fyrir gildistöku laga þessara, að vextir
fram að gjalddaga skuli vera breytilegir í samræmi við vegið meðaltal
ársávöxtunar á nýjum almennum útlánum hjá viðskiptabönkum og sparisjóðum,
meðalútlánsvexti viðskiptabanka og sparisjóða eða meðalútlánsvexti sem
Seðlabanki Íslands birtir, eða vísað er með öðrum almennum hætti til vaxta á
markaði, og skulu þá vextir af þessum peningakröfum, eftir gildistöku laganna,
vera jafnháir vöxtum skv. 1. málsl. 4. gr. að viðbættum 3,5% þegar um
óverðtryggða peningakröfu er að ræða og jafnháir vöxtum skv. 2. málsl. 4. gr. að
viðbættum 2,5% þegar um verðtryggða peningakröfu er að ræða.
Nú segir í
lánssamningi í íslenskum krónum, gerðum fyrir gildistöku laga þessara, að vextir
fram að gjalddaga skuli vera breytilegir í samræmi við hæstu lögleyfðu vexti á
hverjum tíma, hæstu vexti á markaðnum eða vísað er með öðrum almennum hætti til
hæstu vaxta á markaði og skulu þá vextir af þessum peningakröfum eftir
gildistöku laganna vera jafnháir vöxtum skv. 1. málsl. 4. gr. að viðbættum 4,5%,
þegar um óverðtryggða peningakröfu er að ræða og jafnháir vöxtum skv. 2. málsl.
4. gr. að viðbættum 3,5% þegar um verðtryggða peningakröfu er að
ræða."
5 Vextir af kröfum um skaðabætur, sbr. 1. mgr. 8. gr.
laganna skulu á hverjum tíma vera jafnháir tveimur þriðju hlutum vaxta sem
Seðlabanki Íslands ákveður og birtir skv. 1. málslið 4. gr. laganna.
6
Í bráðabirgðaákvæði III. í lögum nr. 38/2001 segir: "Nú segir í
lánssamningi í erlendum gjaldmiðli, gerðum fyrir gildistöku laga þessara, að við
vanskil reiknist hæstu lögleyfðu dráttarvextir eins og þeir eru á hverjum tíma,
dráttarvextir samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Íslands eða dráttarvextir samkvæmt
vaxtalögum, eða vísað er með öðrum hætti til dráttarvaxta sem Seðlabankinn ákvað
skv. 11. gr. laga nr. 25/1987, og skulu þá dráttarvextir þessir vera ákvarðaðir
með sama hætti næstu fimm árin eftir gildistöku laga þessara, en að þeim tíma
loknum skulu þeir vera jafnháir þeim dráttarvöxtum í hlutaðeigandi gjaldmiðli
sem síðast voru auglýstir af Seðlabankanum í Lögbirtingablaði fimm árum eftir
gildistöku laganna."
7 Sömu vextir gilda af peningakröfum í myntum
aðildarlanda myntbandalags Evrópu (EMU) og í evrum.
Tilkynning Nr. 6/2001