Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
nóvember 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt breytingum í nóvember
2001 og frá ársbyrjun 2001.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði um 3,2
milljarða króna í nóvember og nam 37 milljörðum króna í lok mánaðarins
(jafnvirði 344 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend
skammtímalán bankans lækkuðu um 0,6 milljarða króna í mánuðinum og námu 13
milljörðum króna í lok hans. Gjaldeyrisstaða Seðlabankans nettó nam því 24
milljörðum króna í lok mánaðarins. Breytingar á gjaldeyrisforða og
gjaldeyrisstöðu stafa af lánahreyfingum ríkissjóðs. Gengi íslensku krónunnar,
mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði um 2,5% í mánuðinum.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,1 milljarði króna í nóvemberlok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,1 milljarði króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 0,6 milljarða króna í nóvember og námu 54,3 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 3 milljarða króna í mánuðinum og voru 26,1 milljarður króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 3,8 milljarða króna í nóvember og voru neikvæðar um 39,2 milljarða króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans hækkaði í nóvember um 3,3 milljarða króna og nam 32,3 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Tafla yfir helstu liði efnahagsreiknings Seðlabanka Íslands
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum
gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum
ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru
húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á
innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á
þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem
Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.
Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.
Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður
þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður
innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að
eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls
eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða
Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum
skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum
innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en
ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í
umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 42/2001
6. desember 2001