Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
mars 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í mars 2002 og
frá ársbyrjun 2002.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 0,3
milljarða króna í mars og nam 36 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði
362 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán
bankans lækkuðu um 1,1 milljarð króna í mánuðinum og námu 20 milljörðum króna í
lok hans. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um
0,02%.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,2 milljarði króna í
marslok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans
námu 2,2 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir
jukust í mars um 4,5 milljarða króna og námu 90,4 milljörðum króna í lok
mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu
þær 5,5 milljörðum króna.
Seðlar og mynt í umferð jukust um rúmlega
hálfan milljarð króna í mars.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir hækkuðu um 1,3 milljarða króna í mars og voru neikvæðar um 31,4
milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 31,4
milljörðum króna.
Grunnfé bankans jókst í mars um 5,9 milljarða króna og nam
40,5 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar
Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í
erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í
spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf
annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur
bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur
bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán
sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja
gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð
utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra
fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og
bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem
þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn
ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi
nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að
frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur
Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við
Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar
brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess
teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í
Seðlabankanum.
Nr. 12/2002
5. apríl 2002