Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
apríl 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í apríl 2002
og frá ársbyrjun 2002.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,9
milljarða króna í apríl og nam 37,9 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði
404 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán
bankans lækkuðu um 9,5 milljarða króna í mánuðinum og námu 10,5 milljörðum króna
í lok hans. Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs.
Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 3,9%.
Markaðsskráð verðbréf
í eigu bankans námu 4,6 milljörðum króna í apríl lok miðað við markaðsverð.
Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 1,7 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu í apríl um 11,8 milljarða
króna og námu 78,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar
fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu 5,5 milljörðum króna í
mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu
um 5,4 milljarða króna í apríl og voru neikvæðar um 36,8 milljarða króna í lok
mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 36,8 milljörðum
króna.
Grunnfé bankans dróst saman í apríl um 4,5 milljarða króna og nam 36,1
milljarði króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar
Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í
efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Skýringar:
Gjaldeyrisforði
sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf
ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og
ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á
innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar
fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir
til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því
skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og
myntar í umferð utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og
annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í
Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana
eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við
bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til
skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar
eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru
lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir
þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í
þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé
bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana
í Seðlabankanum.
Nr. 16/2002
7. maí 2002