Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum
Fyrsti kafli hér að neðan um dráttarvexti er birtur samkvæmt 2. mgr. 10. gr., sbr. 1., 6. gr. laga nr. 38/2001 um
vexti og verðtryggingu, og gilda dráttarvexti sem þar eru sýndir í sex mánuði í
senn frá 1. janúar og 1. júlí ár hvert.
Annar kafli um almenna vexti er birtur samkvæmt 2. mgr.
10. gr., sbr. 4. og 8. gr. sömu laga og þriðji kafli samkvæmt bráðabirgðaákvæði
III í sömu lögum og gilda vextir samkvæmt II. og III. kafla næsta
almanaksmánuðinn eða uns næsta tilkynning birtist.
Vextir sem breytast eru merktir með stjörnu (*). Innan
sviga eru sýndir vextir fyrir breytingu. Tölurnar sýna vexti alls á ári og taka
gildi frá og með 1. maí 2002
Hægt er að skoða vaxtaþróun á vef
Seðlabanka Ísland með því að fara á svæðið Hagtölur og þar undir eru: Vextir
I. Dráttarvextir af peningakröfum í krónum
1. | Grunnur dráttarvaxta1 | 10,1% |
2. | Vanefndaálag2 | 11,9% |
3. | Dráttarvextir3 | 22,0% |
II. Almennir vextir
1. | Vextir óverðtryggðra lána skv. 4.gr.4 | 13,0%*(14,0%) |
2. | Vextir verðtryggðra lána skv. 4.gr.4 | 7,7% |
3. | Vextir af skaðabótakröfum5 | 8,5%* (9,5%) |
III. Dráttarvextir af peningakröfum í erlendri mynt 6
1. | Bandaríkjadollurum | 5,5% |
2. | Sterlingspundum | 7,5% |
3. | Dönskum krónum | 7,0% |
4. | Norskum krónum | 10,0% |
5. | Sænskum krónum | 7,0% |
6. | Svissneskum frönkum | 5,5% |
7. | Japönskum jenum | 5,0% |
8. | Evrum7 | 6,5% |
Um leið og tilkynning þessi öðlast gildi 1. maí 2002, fellur úr gildi tilkynning nr. 3/2002 dags 21. mars 2002 um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
ATHS.: Auglýsingin sem birtist í 43. tbl. 30 apríl 2002 er nú endurbirt vegna villu í II. Almennir vextir, 3. tbl.
1 Grunnur dráttarvaxta eru gildandi vextir algengustu
skammtímalána Seðlabanka Íslands til lánastofnana, nú ávöxtun í endurhverfum
verðbréfakaupum Seðlabankans.
2 Vanefndaálag
er ellefu hundraðshlutar, nema um annað sé samið skv. 2. mgr. 6. gr. laganna.
Seðlabankanum er þó heimilt að ákveða annað vanefndaálag að lágmarki sjö
hundraðshlutar og að hámarki fimmtán hundraðshlutar.
3
Dráttarvextir eru samtala grunns
dráttarvaxta og vanefndaálags. Seðlabankinn skal birta dráttarvexti eigi skemur
en viku fyrir gildistökudaga dráttarvaxta sem eru 1. janúar og 1. júlí ár
hvert.
4 Almenna vexti skv. 3. gr. laganna skal því aðeins greiða
af peningakröfu að það leiði af samningi, venju eða lögum. Þegar hundraðshluti
þeirra eða vaxtaviðmiðun er að öðru leyti ekki tiltekin, skulu vextir vera á
hverjum tíma jafnháir vöxtum sem Seðlabanki Íslands ákveður með hliðsjón af
lægstu vöxtum á nýjum almennum óverðtryggðum útlánum hjá lánastofnunum og birtir
skv. 10. gr. laganna. Þar sem um verðtryggða kröfu er að ræða skulu vextir vera
jafnháir vöxtum sem Seðlabankinn ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum á nýjum
almennum verðtryggðum útlánum hjá lánastofnunum og birtir skv. 10. gr.
laganna.
Í bráðabirgðaákvæði I. í
lögum nr. 38/2001 segir: "Nú segir í lánssamningi í íslenskum krónum, gerðum
fyrir gildistöku laga þessara, að vextir fram að gjalddaga skuli vera
breytilegir í samræmi við vegið meðaltal ársávöxtunar á nýjum almennum útlánum
hjá viðskiptabönkum og sparisjóðum, meðalútlánsvexti viðskiptabanka og
sparisjóða eða meðalútlánsvexti sem Seðlabanki Íslands birtir, eða vísað er með
öðrum almennum hætti til vaxta á markaði, og skulu þá vextir af þessum
peningakröfum, eftir gildistöku laganna, vera jafnháir vöxtum skv. 1. málsl. 4.
gr. að viðbættum 3,5% þegar um óverðtryggða peningakröfu er að ræða og jafnháir
vöxtum skv. 2. málsl. 4. gr. að viðbættum 2,5% þegar um verðtryggða peningakröfu
er að ræða.
Nú segir í lánssamningi
í íslenskum krónum, gerðum fyrir gildistöku laga þessara, að vextir fram að
gjalddaga skuli vera breytilegir í samræmi við hæstu lögleyfðu vexti á hverjum
tíma, hæstu vexti á markaðnum eða vísað er með öðrum almennum hætti til hæstu
vaxta á markaði og skulu þá vextir af þessum peningakröfum eftir gildistöku
laganna vera jafnháir vöxtum skv. 1. málsl. 4. gr. að viðbættum 4,5%, þegar um
óverðtryggða peningakröfu er að ræða og jafnháir vöxtum skv. 2. málsl. 4. gr. að
viðbættum 3,5% þegar um verðtryggða peningakröfu er að
ræða."
5 Vextir af kröfum um skaðabætur, sbr. 1. mgr. 8. gr.
laganna skulu á hverjum tíma vera jafnháir tveimur þriðju hlutum vaxta sem
Seðlabanki Íslands ákveður og birtir skv. 1. málslið 4. gr.
laganna.
6 Í bráðabirgðaákvæði III. í lögum nr. 38/2001 segir: "Nú
segir í lánssamningi í erlendum gjaldmiðli, gerðum fyrir gildistöku laga
þessara, að við vanskil reiknist hæstu lögleyfðu dráttarvextir eins og þeir eru
á hverjum tíma, dráttarvextir samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Íslands eða
dráttarvextir samkvæmt vaxtalögum, eða vísað er með öðrum hætti til dráttarvaxta
sem Seðlabankinn ákvað skv. 11. gr. laga nr. 25/1987, og skulu þá dráttarvextir
þessir vera ákvarðaðir með sama hætti næstu fimm árin eftir gildistöku laga
þessara, en að þeim tíma loknum skulu þeir vera jafnháir þeim dráttarvöxtum í
hlutaðeigandi gjaldmiðli sem síðast voru auglýstir af Seðlabankanum í
Lögbirtingablaði fimm árum eftir gildistöku laganna."
7 Sömu vextir
gilda af peningakröfum í myntum aðildarlanda myntbandalags Evrópu (EMU) og í
evrum.