Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi
Seðlabanka Íslands í lok maí 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt
breytingum í maí 2002 og frá ársbyrjun 2002.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans
dróst saman um 1,6 milljarða króna í maí og nam 36,4 milljörðum króna í lok
mánaðarins (jafnvirði 449 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).
Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 4,6 milljarða króna í mánuðinum og námu
15 milljörðum króna í lok hans. Þessar breytingar má rekja til
lánahreyfinga ríkissjóðs. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um
0,3%.
Prentvæn útgáfa fréttar (pdf-skjal)
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,6 milljörðum
króna í maílok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu
bankans námu 1,7 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á
innlánsstofnanir stóðu í stað í maí og námu 78,7 milljörðum króna í lok
mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu
5,5 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir hækkuðu um 6,5 milljarða króna í maí og voru neikvæðar um 30,3
milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 30,3
milljörðum króna.
Grunnfé bankans breyttist óverulega í maí og nam það 36,3
milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar
Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
|
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans |
|||
|
Í milljónum króna |
|||
|
|
|
|
|
|
Staða í lok tímabils |
Hreyfingar 2002 |
||
|
Desember |
Maí |
Frá ára- |
Í maí |
Eignaliðir : |
2001 |
2002 |
mótum |
|
|
|
|
|
|
Gjaldeyrisforði |
36.573 |
36.399 |
-175 |
-1.555 |
Markaðsskráð verðbréf |
5.099 |
4.629 |
-470 |
7 |
Ríkissjóðs |
2.144 |
1.675 |
-470 |
7 |
Annarra |
2.954 |
2.954 |
0 |
0 |
Kröfur á innlánsstofnanir |
54.053 |
78.746 |
24.694 |
160 |
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir |
22.774 |
5.572 |
-17.202 |
54 |
|
|
|
|
|
Skuldaliðir: |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Erlendar skuldir til skamms tíma |
14.979 |
15.010 |
32 |
4.558 |
Seðlar og mynt |
9.174 |
9.093 |
-81 |
240 |
Almennar innstæður innlánsstofnana |
965 |
1.129 |
164 |
-2.330 |
Staða á bindireikningum innlánsstofnana |
17.678 |
26.077 |
8.399 |
2.312 |
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana |
837 |
489 |
-348 |
102 |
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana |
1.288 |
1.222 |
-66 |
185 |
|
|
|
|
|
Liðir til skýringar : |
|
|
|
|
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó: |
21.595 |
21.388 |
-206 |
-6.113 |
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó: |
-31.099 |
-30.283 |
816 |
6.484 |
Kröfur á aðra, brúttó |
76.932 |
84.413 |
7.481 |
210 |
Grunnfé: |
27.817 |
36.298 |
8.481 |
222 |
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr.18 /2002
6. júní 2002