03. júlí 2002
Skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um Ísland
Í dag birti Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn skýrslu um Ísland á heimasíðu sinni (www.imf.org). Um er að ræða skýrslu sem samin var eftir reglubundna árlega heimsókn sérfræðinga sjóðsins hingað til lands í mars síðastliðnum.
Álit sendinefndarinnar í lok heimsóknar í mars var birt í frétt Seðlabanka Íslands nr. 11/2002, 3. apríl 2002.
Skýrslan var rædd í framkvæmdarstjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 21. júní sl.
Í kjölfar umræðunnar í stjórn sjóðsins er gefin út frétt sem einnig er birt á
heimasíðu hans.
Nánari upplýsingar veita Birgir Ísleifur
Gunnarsson formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands og Jón Sigurgeirsson
framkvæmdastjóri alþjóðasviðs bankans í síma 569-9600.
Nr. 23/2002
3. júlí 2002