Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
júlí 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í júlí 2002 og
frá ársbyrjun 2002.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,1 milljarð
króna í júlí og nam 36,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 427
milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans
hækkuðu um 4,7 milljarða króna í mánuðinum og námu 20 milljörðum króna í lok
hans. Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs og lækkunar
á inneign ríkissjóðs á gjaldeyrisreikningum. Gengi íslensku krónunnar
styrktist í mánuðinum um 1,9% og hefur þar með styrkst um tæp 12% frá
áramótum.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,7 milljörðum króna í
júlílok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,7
milljarði króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir drógust saman
um 0,3 milljarða króna í júlí og námu 83,1 milljarði króna í lok
mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum
og námu 5,6 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á
ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 1,8 milljarða króna í júlí og voru
neikvæðar um 27,5 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður
ríkissjóðs námu 27,5 milljörðum króna.
Grunnfé bankans dróst saman um
1,1 milljarð króna í júlí og nam það 38,8 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir
aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 27/2002
7. ágúst 2002