Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í ágúst 2002
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,1 milljarð króna
í ágúst og nam 37,5 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 439 milljóna
Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans drógust
saman um 2,2 milljarða króna í mánuðinum og námu 17,9 milljörðum króna í lok
hans. Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs. Gengi
íslensku krónunnar veiktist í mánuðinum um tæp 3%.
Í
mánuðinum var gerður framvirkur samningur um sölu á gjaldeyri við
innlánsstofnun, en Seðlabankinn hefur skuldbundið sig til að selja stofnuninni
gjaldeyri samtals að fjárhæð 3,3 milljarðar króna í þremur áföngum á tímabilinu
september 2002 til mars 2003.
Markaðsskráð verðbréf í
eigu bankans námu 5,1 milljarði króna í ágústlok miðað við markaðsverð. Þar af
námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,7 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir drógust saman um 4,5
milljarða króna í júlí og námu 78,6 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítillega í mánuðinum og námu 6
milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur
bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 2,5 milljarða króna í ágúst og
voru neikvæðar um 25 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður
ríkissjóðs námu 25 milljörðum króna.
Grunnfé bankans stóð því sem
næst í stað í ágúst og nam það 38,8 milljörðum króna í mánaðarlok.
Fréttin í heild sinni með töflu (pdf-skjal, 80 kb)
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
31/2002
5. september 2002