Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í október 2002
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi
Seðlabanka Íslands í lok október 2002 og til samanburðar í lok desember 2001
ásamt breytingum í október 2002 og frá ársbyrjun 2002.
Gjaldeyrisforði
Seðlabankans jókst af sérstökum ástæðum tímabundið í september og hefur það nú
gengið til baka, en forðinn lækkaði í október um 13,2 milljarða og nam 36,5
milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 419 milljóna Bandaríkjadala á gengi
í mánaðarlok). Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs. Erlend
skammtímalán bankans lækkuðu um 4,5 milljarða króna í mánuðinum og námu 13,7
milljörðum króna í lok hans.
Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum
millibankamarkaði fyrir 1,2 milljarða króna, og er það er í samræmi við áætlun
hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem kynnt var í
fréttatilkynningu bankans nr. 28/2002. Gengi íslensku krónunnar veiktist í
mánuðinum um 0,8%.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,1
milljarði króna í októberlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð
verðbréf ríkissjóðs 1,8 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á
innlánsstofnanir jukust um 3,1 milljarð króna í október og námu 77,9 milljörðum
króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust um 2,0 milljarða
króna í mánuðinum og námu 8,0 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur
bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir jukust um 7,4 milljarða króna í október og
námu nettóinnstæður ríkissjóðs um 31 milljarði króna í lok
mánaðarins.
Grunnfé bankans jókst í október um 4,5 milljarða króna og nam
það 37,8 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir
aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 39/2002
6. nóvember 2002