Rit um opinberan gjaldmiðil
Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns hefur gefið út
ritið Opinber gjaldmiðill á Íslandi. Í ritinu er gerð grein fyrir öllum
opinberum gjaldmiðli sem gefinn hefur verið út til notkunar á Íslandi frá því á
18. öld, er saga hans hefst, til þessa dags. Hér er bæði um að ræða seðla og
mynt, en mynt er skipt í tvo sjálfstæða flokka, annars vegar gangmynt og hins
vegar tilefnismynt, þ.e. mynt sem gefin er út til hátíðabrigða.
Saga opinbers
gjaldmiðils á Íslandi hefst árið 1778 með formlegri lögfestingu danskra
kúrantseðla sem voru sérstaklega búnir íslenskum texta til þess að þeir gætu
gengið hér. Íslensk gjaldmiðilssaga er óvenjuleg að því leyti að hér komu seðlar
til sögu talsvert fyrr en slegin mynt öndvert við það sem gerst hefur með
flestum öðrum þjóðum. Fyrstu seðlar sem íslensk stjórnvöld létu gera voru gefnir
út 1886, en íslensk mynt kom ekki til fyrr en 1922. Á löngum tíma hefur útgáfa
opinbers gjaldmiðils verið á margra höndum, og í ritinu er gerð grein fyrir hlut
hvers útgefanda fyrir sig í tímaröð.
Tvisvar hefur verið efnt til gagngerra
gjaldmiðilsskipta hér á landi. Árið 1873 voru gefin út ný myntlög í Danmörku, en
með þeim urðu róttækustu breytingar sem gerðar hafa verið á peningakerfinu er
(1) lögfestur var nýr myntfótur, gullfótur í stað silfurs; (2) tekið var upp
tugamál í verðreikningi í stað tylftarmáls; og (3) ný myntheiti, króna og eyrir,
komu í stað spesíu (spesíudals), ríkisdals og skildings. ' Um áramótin 1980/81
var í annað sinn skipt um gjaldmiðil er verðgildi krónu var hundraðfaldað. '
Minni háttar var sú breyting er seðlar voru innkallaðir og gefnir út í breyttum
lit vegna eignakönnunar um áramótin 1947/48.
Í ritinu er birt allnákvæm
lýsing hverrar gjaldmiðilseiningar fyrir sig þar sem greind er stærð, litur,
myndefni og fleiri atriði í gerð seðla ásamt þeim undirskriftum sem þekktar eru,
' og stærð, málmblanda og myndefni á mynt ásamt árgerðum og upplagstölum. Þá er
greint hvar seðlar eru prentaðir og mynt slegin og hverjir hafa annast hönnun
gjaldmiðilsins eftir því sem um er vitað. Loks er gerð ítarleg grein fyrir
lagaramma gjaldmiðilsins og rakin opinber ákvæði er varða útgáfu hans og meðferð
og upphaf og gildislok hverrar gjaldmiðilseiningar.
Opinber gjaldmiðill á
Íslandi er í ritröðinni Myntrit sem Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns gefur
út. Ritið er 74 bls. og búið litmyndum af öllum þeim gjaldmiðli sem um er
fjallað. Það fæst í Seðlabanka Íslands og kostar kr. 1.500.
Nr. 40/2002
12. nóvember 2002