Ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans 2003
Ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans og tengdir fundir
standa nú yfir í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Sunnudaginn 21.
september var haldinn haustfundur fjárhagsnefndar sjóðsins (International
Monetary and Financial Committee, IMFC). Í nefndinni sitja 24 fulltrúar sem eru
ráðherrar eða seðlabankastjórar þeirra ríkja sem gegna formennsku í einstökum
kjördæmum sjóðsins. Formaður nefndarinnar er Gordon Brown, fjármálaráðherra
Bretlands. Ísland fer með formennsku í kjördæmi Norðurlanda og
Eystrasaltsríkjanna árin 2002 og 2003. Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, er
fulltrúi kjördæmisins í nefndinni og gerði grein fyrir sameiginlegri afstöðu
ríkjanna til viðfangsefna fundarins. Ræða fjármálaráðherra og yfirlýsing fjárhagsnefndarinnar eru birtar á vefsíðum
fjármálaráðuneytisins og Seðlabanka Íslands.
Í ræðu fjármálaráðherra
var fjallað um þróun og horfur í heimsbúskapnum. Hann lagði áherslu á að
aðildarríki Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hrintu í framkvæmd aðgerðum, ekki síst
skipulagsumbótum, sem stuðluðu að auknum hagvexti. Einnig lagði hann áherslu á
mikilvægi þess að þróunarríkjum yrði tryggður greiðari aðgangur að
alþjóðamörkuðum og að ríki heimsins ynnu að því í sameiningu að þúsaldar
þróunarmarkmið Sameinuðu þjóðanna (e: Millennium Development Goals) nái fram að
ganga. Í umfjöllun um stefnumál Alþjóðagjaldeyrissjóðsins lagði fjármálaráðherra
einkum áherslu á leiðir til þess að styrkja eftirlitshlutverk sjóðsins og leiðir
til að þróa áfram fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir
fjármálakreppur. Einnig áréttaði hann nauðsyn stjórnfestu og gagnsæis.
Á
ársfundinum flytur Birgir Ísleifur Gunnarson, formaður bankastjórnar Seðlabanka
Íslands, ræðu fyrir hönd Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna. Ræðan verður flutt
n. k. miðvikudag, 24. september og verður birt að því loknu á heimasíðu
Seðlabankans.
Nánari upplýsingar veitir Jón Þ. Sigurgeirsson,
framkvæmdastjóri alþjóðasviðs Seðlabanka Íslands í síma 891-6888.
Nr.25/2003
22. september 2003