Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands
Frá miðju ári 1995 hefur Seðlabanki Íslands mánaðarlega gefið út frétt með helstu liðum úr efnahagsreikningi sínum í lok liðins mánaðar. Í stað helstu liða úr efnahagsreikningi sínum mun bankinn héðan í frá birta efnahagsreikning eftir lok hvers mánaðar. Fréttin verður hér eftir sem hingað til birt á heimasíðu bankans. Um leið hættir bankinn annarri reglulegri dreifingu og birtingu á efnahagsreikningi sínum. Yfirleitt verða sýndar upplýsingar frá lokum síðasta mánaðar, lokum næstliðins mánaðar og liðinna áramóta auk breytinga á einstökum liðum. Frávik verða við birtingu efnahagsins í lok janúar.
Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok janúar 2004
Í
meðfylgjandi yfirliti er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok
janúar 2004 og til samanburðar í lok desember 2003 og í lok desember
2002.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði í janúar um 1,7 milljarða
króna og nam 56,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 812 milljóna
Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).
Seðlabankinn keypti gjaldeyri á
innlendum millibankamarkaði fyrir 7 milljarða króna í janúar í samræmi við
áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a. var greint
frá í nóvemberhefti Peningamála 2003. Þar af keypti bankinn jafnvirði um 5,5
milljarða króna í einum viðskiptum við einn viðskiptavakanna á gjaldeyrismarkaði.
Um leið gerði bankinn gjaldmiðlaskiptasamning við viðskiptavakann og seldi honum
Bandaríkjadali að andvirði 6,9 milljarða króna sem bankinn kaupir aftur í apríl
n.k.
Gengi íslensku krónunnar styrktist um 3,3% í
janúar.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,9 milljörðum króna í
janúarlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs
0,7 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um
nær 18 milljarða króna í janúar og námu 24 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu einnig lítillega og námu 4,2 milljörðum
króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir lækkuðu um 7,8 milljarða króna í janúar og námu nettóinnstæður
ríkissjóðs 30 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans hækkaði
í janúar um 10,7 milljarða króna og nam 32,4 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla
Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 127kb)
Nr. 4/2004
5. febrúar 2004