26. janúar 2006
Seðlabanki Íslands hækkar stýrivexti
.
Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentur frá og með 31. janúar n.k. í 10,75%. Aðrir vextir bankans verða einnig hækkaðir um 0,25 prósentur frá 1. febrúar nk.
Næsta ákvörðun bankastjórnar Seðlabanka Íslands um vexti verður að óbreyttu birt fimmtudaginn 30. mars n.k. um leið og næsta hefti Peningamála verður gefið út.