Ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans í Singapúr 2006
Sameiginlegur ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans var haldinn dagana 16. til 20. september í Singapúr, auk þess sem fundur fjárhagsnefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var einnig haldinn. Finnland gegnir formennsku í kjördæmi Norðurlanda og Eystrasaltslanda í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum á árunum 2006 til 2007. Fjármálaráðherra Finnlands, Eero Heinaluoma, talaði fyrir hönd Norðurlanda og Eystrasaltslanda í fjárhagsnefndinni.
Ársfundarræða Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna var flutt af Stefan Ingves, seðlabankastjóra í sænska seðlabankanum. Ræður fulltrúa kjördæmisins eru birtar í heild sinni á vefsíðum Seðlabanka Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Sjá nánar:
Ræða kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltslanda í fjárhagsnefndinni haustið 2006
Ársfundarræða Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna 2006