01. desember 2006
Viðmiðunargengi erlendra gjaldmiðla
Daglega er skráð opinbert viðmiðunargengi tíu gjaldmiðla, sbr. 19. gr. laga nr. 36 frá 22. maí 2001 um Seðlabanka Íslands. Skráð er kaup-, sölu- og miðgengi þessarra gjaldmiðla. Í dag hefst skráning miðgengis tuttugu og fimm gjaldmiðla til viðbótar og verður það birt á heimasíðu bankans daglega hér eftir. Athygli er vakin á því að varðandi þá gjaldmiðla sem nú bætast við er ekki um að ræða opinbert viðmiðunargengi í skilningi laganna sem vitnað var til, aðeins skráð miðgengi.
Opinbert viðmiðunargengi er skráð fyrir eftirtalda gjaldmiðla:
Bandaríkjadalur | USD |
Sterlingspund | GBP |
Kanadadalur | CAD |
Dönsk króna | DKK |
Norsk króna | NOK |
Sænsk króna | SEK |
Svissneskur franki | CHF |
Japanskt jen | JPY |
Sérstök dráttarréttindi | XDR |
Evra | EUR |
Miðgengi er skráð fyrir eftirtalda gjaldmiðla frá og með 1. desember 2006:
Kínverskt júan | CNY |
Rússnesk rúbla | RUB |
Pólskt slot | PLN |
Eistnesk króna | EEK |
Lettneskt lat | LVL |
Litháenskt litas | LTL |
Nígersk næra | NGN |
Tævanskur dalur | TWD |
Suðurkóreskt vonn | KRW |
Súrinamskur dalur | SRD |
Ástralíudalur | AUD |
Ný-Sjálenskur dalur | NZD |
Hong Kong dalur | HKD |
Ungversk forinta | HUF |
Ísraelskur sikill | ILS |
Suður-Afrískt rand | ZAR |
Singapúrskur dalur | SGD |
Mexíkóskur pesi | MXN |
Maltnesk líra | MTL |
Tyrknesk líra | TRY |
Króatísk kúna | HRK |
Indversk rúpía | INR |
Búlgarskt lef | BGN |
Tékknesk króna | CZK |
Brasilískt ríal | BRL |
Nánari upplýsingar veitir Sturla Pálsson framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs (sturla.palsson@sedlabanki.is) í síma 569-9638.
Nr. 44/2006
1. desember 2006