08. október 2008
Matsfyrirtækið Fitch lækkar lánshæfiseinkunnir í BBB-/A-
Matsfyrirtækið Fitch Ratings greindi frá því í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri og innlendri mynt í BBB- (BBB minus) og A- (A minus).
Lánshæfiseinkunnin fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt er lækkuð í F3 og landseinkunnin (e. country ceiling) lækkuð í BBB-. Allar lánshæfiseinkunnirnar eru áfram á neikvæðum horfum (e. Rating watch Negative).
Fréttatilkynningu Fitch má nálgast hér: