Málstofa um stöðu íslenskra heimila í kjölfar bankahrunsins
Málstofa var haldin í dag um stöðu íslenskra heimila í kjölfar bankahrunsins. Málstofan fór fram í fundarsal Seðlabankans, Sölvhóli.
Frummælendur voru Karen Á. Vignisdóttir og Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hagfræðingar í Seðlabanka Íslands.
Gögn sem kynnt voru á málstofunni:
Staða íslenskra heimila í kjölfar bankahruns - Frekari niðurstöður greiningar Seðlabanka Íslands (.pdf)
Erindi þeirra Karenar og Þorvarðar fjallar um stöðu íslenskra heimila í kjölfar bankahrunsins. Þar voru kynntar frekari niðurstöður greiningar Seðlabanka Íslands á þessu viðfangsefni. Meðal annars er leitast við að svara eftirfarandi spurningum:
- Hversu stór hluti heimila er með þunga greiðslubyrði í hlutfalli við tekjur, býr við neikvæða eiginfjárstöðu eða hefur orðið fyrir verulegum tekjumissi vegna atvinnuleysis?
- Hvernig dreifist greiðslubyrði íbúða-, bíla- og yfirdráttarlána eftir tekjuhópum?
- Hve stór hluti heildarskulda er borinn af heimilum með viðráðanlega greiðslubyrði?
- Er tekjudreifing heimila með erlend lán frábrugðin heimilum með krónulán?
- Hver er greiðslubyrði og skuldastaða barnafjölskyldna?
- Hver er greiðslubyrði og skuldastaða atvinnulausra?
- Hvernig hafa tekjur breyst milli ára?
- Hve stór hluti heimila er með meiri skuldir vegna íbúða-, bíla- og yfirdráttarlána en nemur eignum þeirra í húsnæði og fjárhagslegum auði?
Sjá nánar um málstofur: Málstofur Seðlabanka Íslands.
Sjá fyrri tilkynningar um gögn er varða efnið:
Áhrif fjármálakreppu á efnahag heimila - bráðabirgðaniðurstöður starfshóps Seðlabanka Íslands - 11. mars.2009
Fleiri niðurstöður starfshóps Seðlabanka Íslands um skuldir heimilanna - 27. mars.2009