24. nóvember 2009
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2009
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Stýrivextir Seðlabanka Íslands hafa lækkað um 1 prósentustig frá síðustu dráttarvaxtarákvörðun. Frá 1. desember nk. verða vextir eftirfarandi. Vextir verðtryggðra lána hækka og verða 5,3% í stað 4,9%. Vextir af óverðtryggðum lánum lækka úr 10,5% niður í 9% og vextir af skaðabótakröfum lækka úr 7,0% í 6%.
Dráttarvextir lækka og fara úr 19% niður í 18% fyrir tímabilið 1. desember til 31. desember 2009.
Sjá tilkynninguna í heild (pdf-skjal)