21. desember 2009
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 1/2010
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Stýrivextir Seðlabanka Íslands hafa lækkað um 1 prósentustig frá síðustu dráttarvaxtarákvörðun. Frá 1. janúar nk. verða vextir eftirfarandi. Vextir verðtryggðra lána lækka og verða 4,8% í stað 5,3%. Vextir af óverðtryggðum lánum lækka úr 9,0% niður í 8,5% og vextir af skaðabótakröfum lækka úr 6,0% í 5,7%.
Dráttarvextir lækka og fara úr 18% niður í 17% fyrir tímabilið 1. janúar til 31.janúar 2010.
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum 1/2010 (pdf-skjal)