Breytingar á reglum um gjaldeyrismál
Seðlabanki Íslands hefur gefið út nýjar reglur um gjaldeyrismál í samræmi við ákvæði laga um gjaldeyrismál, nr. 87/1992, með síðari breytingum, þar sem mælt er fyrir um að reglur um gjaldeyrismál skuli endurskoðaðar á sex mánaða fresti.
Nýju reglurnar taka gildi í dag, 30. apríl 2010. Þær breytingar sem hafa verið gerðar á eldri reglum fela að mestu í sér orðlagsbreytingar til að tryggja samræmi í skýringu og túlkun þeirra. Þá mæla þær fyrir um lækkun á hámarksfjárhæð heimildar til kaupa á erlendum gjaldeyri í reiðufé vegna ferðalaga, sem breytist nánar tiltekið úr 500.000 krónum í hverjum almanaksmánuði í 350.000 krónur. Jafnframt hefur verið gerð breyting á sérstökum undanþágum til að taka af allan vafa um ólögmæti svokallaðra aflandsviðskipta.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Guðbjartsdóttir forstöðumaður gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands í síma 569 9600.
Sjá reglur um gjaldeyrismál er taka gildi 30. apríl 2010:
Reglur um gjaldeyrismál Nr. 370, frá 29. apríl 2010.
Nr. 8/2010
30. apríl 2010