30. ágúst 2010
Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á öðrum ársfjórðungi 2010
Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2010 og um stöðu þjóðarbúsins í lok fjórðungsins.
Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 9 ma.kr. á öðrum ársfjórðungi samanborið við rúmlega 18 ma.kr. óhagstæðan jöfnuð á fjórðungnum á undan. Afgangur af vöruskiptum við útlönd var 32,5 ma.kr. og 13,5 ma.kr. afgangur var á þjónustuviðskiptum. Jöfnuður þáttatekna var hinsvegar neikvæður um 53 ma.kr.
Sjá nánar í meðfylgjandi pdf-skjali:
Greiðslujöfnuður og erlend staða á öðrum ársfjórðungi (pdf-skjal)