Gögn í tengslum við þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og AGS
Birt hefur verið skýrsla í tengslum við þriðju endurskoðun á efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Einnig hefur verið birt skýrsla í tengslum við reglubundna umræðu í framkvæmdastjórn sjóðsins um stöðu og horfur í efnahagsmálum fyrir árið 2010.
Umræða um skýrslurnar fór fram í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hinn 29. september 2010. Einnig er meðfylgjandi fréttatilkynning Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varðandi þessa endurskoðun.
Sjá hér viðkomandi gögn:
Iceland Staff Report 2010 A4 and 3 Review.pdf (Skýrsla er inniheldur m.a. yfirlýsingu íslenskra stjórnvalda)
Iceland Selected Issues Paper for 2010 Article IV Consultation.pdf (Skýrsla sjóðsins í tengslum við reglubundna úttekt)
Iceland_PIN for 2010 ArtIV Consultation.pdf (Fréttatilkynning sjóðsins).