22. október 2010
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2010
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Vextir fyrir tímabilið 1. - 30. nóvember 2010 verða sem hér segir:
• Vextir óverðtryggðra lána lækka í 6,30% - (voru 6,75%).
• Vextir af skaðabótakröfum lækka í 4,20% - (voru 4,50%).
• Vextir af verðtryggðum lánum haldast óbreyttir og verða áfram 4,8%.
Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu sem birt var í lok september sl. Dráttarvextir eru því óbreyttir og verða áfram 13,25% fyrir tímabilið 1. - 30. nóvember 2010.
Sjá nánar: